Í grunnskólum landsins fer fram gríðarleg vinna á hverjum degi.
Hver nemandi lærir í á bilinu 20-23 klukkutíma á viku. Við
spyrjum er þessi tími vel nýttur? Eru börnin að fá nám við hæfi
eins og Aðalnámskrá grunnskóla boðar?
Erum við að búa
börn undir lífið í grunnskólum landsins? Þegar stórt er spurt er
fátt um svör en hér verður þó gerð tilraun til þess. Ætla má að
nemendur geri sér að minnsta kosti ekki grein fyrir tengingunni
þar sem að spurningar á borð við;
Til hvers
eigum við að læra þetta?
Hver er
tilgangurinn með þessu?
Heldur þú í
alvöru að ég eigi eftir að nota þetta?
heyrast oft í
skólastofum landsins. Með þetta í huga höfum við ákveðið að líta
á hvernig námsverkefni þurfa að vera uppbyggð til þess að
raunverulegt nám eigi sér stað. Slík námsverkefni veljum við að
kalla rauntengd námsverkefni. Rauntengd námsverkefni eru bæði
tengd við innri og ytri veruleika nemandans og eru aldrei slitin
úr samhengi við aðrar námsgreinar.
Við ætlum að skoða sögu og þróun rauntengdra verkefna og líta
einkum í átt að því sem gert hefur verið hér á landi. Eins ætlum við að
koma fram með hugmyndir hvernig hægt er á einfaldan og ódýran
hátt hægt að tengja námsverkefni nemenda betur við raunveruleika
þeirra. Þegar öllu er á botninn hvolft þá er það eitt af aðalhlutverkum
grunnskólanna að undirbúa nemendur undir líf og starf í
samfélagi nútímans.
"Í grunnskólanum skal unnið að
því í samvinnu við heimilin að búa nemendur undir líf og starf.
... Menntakerfið á að vera sveigjanlegt til að mæta nýjungum og
breyttum kröfum. ... Almenn menntun er besta veganesti sérhvers
einstaklings í þekkingar- og upplýsingasamfélaginu."
(Aðalnámskrá grunnskóla, 1999)