Náms- og starfsfræðsla
Til baka

Náms- og starfsfræðsla er í þróun í Sunnulækjarskóla
 

Nám og störf - val 
Áhersla á námstækni, sjálfsskoðun, framhaldsskóla, atvinnumarkað og starfskynningar.

  • Nemendur vinna verkefni tengd námstækni sem miða að því að þeir finni hvaða námstækni henti þeim best og hvaða þætti hennar er mikilvægt að endurskoða.

  • Nemendur skoða áhugasvið sitt og hæfileika og hvar þeir fái best notið sín.

  • Nemendur þjálfist í að setja sér markmið og horfi til framtíðar.

  • Nemendur kynnist námi og störfum í gegnum upplýsingaöflun og miðli til annarra nemenda, kynnist heimasíðum framhalsskóla og vinna verkefni.

  • Nemendur fara í heimsókn í framhaldsskóla og fyrirtæki.

Það sem var gert í námi og störfum veturinn 2009-2010:
Í námi og störfum var farið yfir helstu atriði í námstækni, gildi skoðuð, fjallað um brottfall, orsakir og afleiðingar og ráð til að styrkja sig, nám og störf voru skoðuð, meðal annars út frá kynbundinni starfshugsun, ákvarðanataka var rædd og mikilvægi þess að setja sér markmið. Farið var í heimsókn í Fjölbrautarskóla Suðurlands og nemendur heimsóttu ýmist Lögreglustöðina eða leikskólann Árbæ. Verkefni voru unnin, m.a. tekin viðtöl við einstaklinga sem sinna ólíkum störfum. Öllum verkefnum sem og upplýsingum var safnað í ferilmöppu.