|
Féttaskot tekið af heimasíðu UMFÍ – Flott án fíknar
verkefnið vorið 2010
“Verkefnastjóri Flott án fíknar heimsótti
nemendur í 7. bekk Sunnulækjarskóla á vordögum og kynnti verkefnið Flott
án fíknar. Í lok kynningar veitti hún klúbbstjóranum Jóhönnu
Einarsdóttur viðurkenningu frá UMFÍ fyrir vel unnin störf í þágu Flott
án fíknar.
Klúbbstarfið í Sunnulækjarskóla hefur verið einstaklega blómlegt og
hefur spurst út víðar í Árborg. Mikill áhugi er fyrir að efla starfið
enn frekar í sveitarfélaginu og var óskað eftir því að kynna verkefnið
enn frekar. “
 
Verkefnið
Flott án fíknar þróast yfir í stærra
verkefni Flott fyrirmynd
en stefnt er að því að tengja forvarnarstarfið
bæði við grunnskólann og framhaldsskólann
Flott án fíknar klúbburinn verður með
breyttu sniði veturinn 2010-2011 þar sem félagsmiðstöðin Zelsiuz leiðir starfið. Anna Þorsteinsdóttir er klúbbstjóri en allir grunnskólar í
sveitafélaginu koma að verkefninu. Tenglar verða í hverjum skóla og er
Hanna Skúladóttir tengill fyrir Sunnulækjarskóla. Vonandi verða sem
flestir nemendur í 8.-10. bekk áfram virkir í klúbbnum sem mun bera
heitið "Flott fyrirmynd".
Flott án fíknar er
félagsskapur fyrir unglinga sem vilja vera án tóbaks og annarra vímuefna.
Klúbbfélögum er gefinn kostur á að skemmta sér saman á heilbrigðan og
uppbyggilegan hátt.
Klúbbstjóri/umsjónarmaður klúbbsins var:
Jóhanna Einarsdóttir náms og starfsráðgjafi
Aðrir sem koma að klúbbnum voru: Anna Guðrún Steindórsdóttir
íþróttakennari og
Hanna Skúladóttir umsjónarkennari í 7. bekk.
SAGAN -
aðdragandi þess að klúbbur var stofnaður í
Sunnulækjarskóla.
-
Guðrún
Snorradóttir, landsfulltrúi forvarnarverkefnis UMFÍ “Flott án fíknar” kom á
vormánuðum 2008 og kynnti þáverandi 8. bekkingum klúbbastarfið “Flott án fíknar”.
-
Klúbbur -
Flott
án fíknar var stofnaður í Sunnulæk haustið
2008. 29. október þegar fyrsti klúbbhittingur var haldinn
í Fjallasal skólans voru klúbbfélagar í 8. bekk 54. Allir fengu
stuttermaboli að gjöf merkta Flott án fíknar.
-
Í
desember voru klúbbfélagar orðnir 60 en 62 þegar skóla lauk vorið
2009.
-
Hægt er
skoða það sem gert var á síðasta skólaári í klúbbnum og fylgst með
því sem gert verður á þessu skólaári undir flipanum - Fréttir.
-
Í
desember 2008 sömdu tveir nemendur í 8. bekk: Kristín Rut Eysteinsdóttir og Guðfinna Rós
Gunnarsdóttir lag og texta um Flott án fíknar klúbbinn:
Verið velkomin í Flott án fíknar klúbbinn,
við erum hér og styrkjum okkar bönd.

Við njótum þess að vera hérna saman
því okkur finnst það voða gaman.
Flott án fíknar klúbbur erum við,
við stöndum hérna þétt hlið við hlið.
Við njótum þess að lifa og hafa gaman,
því í þessum klúbb erum við saman.
www.flottanfiknar.is |