|
Persónuleg
ráðgjöf felst í að veita nemendum og forráðamönnum ýmiskonar aðstoð og stuðning
svo að nemendur nái settu marki í námi sínu og skólagangan nýtist sem best.
Persónuleg
vandamál geta haft þau áhrif á nemandann að þau hamli honum í námi. Þau
geta verið af ýmsum toga, svo sem námsleg, félagsleg eða tengd
samskiptum. Aðstoð náms- og starfsráðgjafa miðar að því að hjálpa
nemendum að leita lausna.
- Náms- og starfsráðgjafi er
bundinn þagnarskyldu um einkamál nemenda -
|