Einelti
Til baka

Eineltisáætlun Sunnulækjarskóla

Eineltisáætlun Sunnulækjarskóla skiptist í fjóra megin þætti, skilgreiningu, forvarnir, viðbrögð við einelti sem upp kemur og að lokum skráningu og mælingar. 

Skilgreining

Til að samræma skilning og tryggja að allir sem að málum koma hafi sameiginlega sýn á hvað einelti er hefur Sunnulækjarskóli sett fram stuttorða skilgreiningu á hvað einelti er.  Skilgreiningin birtist m.a. í eineltisyfirlýsingu Sunnulækjarskóla en þar segir:

Einelti:

·        er endurtekið ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, þar sem einn eða fleiri níðast á einum.

·        getur falið í sér misbeitingu á valdi þar sem gerandinn beitir hótunum og vill ráða yfir þolandanum.

·        getur falið í sér kerfisbundið afskiptaleysi gagnvart einstaklingi.

Einelti getur verið:

·        Líkamlegt:         barsmíðar, spörk, hrindingar, skemmdarverk

·        Munnlegt:          uppnefni, niðrandi athugasemdir, endurtekin
                        stríðni

·        Skriflegt:           bréfasendingar, rafræn skeyti s.s. sms eða

                                 tölvupóstur og veflægt, s.s blogg eða  samskipta-                                 síður

·        Óbeint:             neikvæð líkamstjáning, baktal, útskúfun
                        eða útilokun úr félagahópi.

 

Forvarnir

Einn mikilvægasti þáttur í að vinna gegn einelti eru forvarnir.  Þær hafa að markmiði að vinna með viðhorf, samskipti og aukinn skilning skólasamfélagsins á því hvað einelti er.  Með öflugum forvörnum má draga úr líkum á að einelti eigi sér stað.  Eftirfarandi þættir eru hluti af forvarnaráætlun Sunnulækjarskóla á sama tíma og þeir eru samofnir skólastarfinu.

  • Eineltisyfirlýsing
    • á hverju hausti er fundað í öllum bekkjum um eineltisyfirlýsingu Sunnulækjarskóla og allir samþykkja hana.
  • Bekkjarfundir
    • Kennarar halda bekkjarfundi á hverju hausti til að ræða eineltisyfirlýsinguna en í framhaldi af því eru haldnir fundir eftir því sem þurfa þykir.  Kennurum býðst aðstoð við að halda slíka fundi og í sumum tilfellum er fundað í tvennu lagi með stelpum og strákum.
  • Tengslakönnun
    • Í lok nóvember á hverju ári eru lagðar fyrir tengslakannanir í öllum umsjónarhópum skólans.  Umsjónarkennara fá með því betri yfirsýn yfir félagskerfið í sínum hópi en láta deildarstjóra jafnframt vita ef vísbendingar um einelti koma þar fram.  Grunur er skráður í árveknilista.
  • Sjálfsmat nemenda
    • Í lok hverrar annar fylla nemendur út sjálfsmat og skýra frá eigin líðan. Komi fram vísbendingar um einelti við slíkt mat gerir umsjónarkennari deildarstjóra viðvart sem skráir gruninn í árveknilistann.  Hafa þarf í huga að ekki er víst að sá sem fyrir einelti verður skrái vanlíðan sína í slíku mati.
  • Eineltisráð
    • Deildarstjórar yngri og eldri deildar ásamt námsráðgjafa skipa eineltisráð.  Hlutverk þess er að halda utan um vinnu vegna eineltis og vera umsjónarkennurum til stuðnings og aðstoðar við vinnu með eineltismál.  Ráðið sér einnig um að viðhalda árveknilista og gæta þess að engin mál séu látin liggja milli hluta.
  • Vinatengsli milli árganga
    • Á hverju ári eru skipulögð vinatengsl milli yngri og eldri nemenda í skólanum.  Þegar haldnar eru söngstundir, dansað í kringum jólatré og ýmislegt fleira eru þessi vinatengsl virkjuð og eldri nemendur sækja sinn yngri vin.  Þessi tengsl eru líka til þess fallin að auka samheldni og samstöðu nemenda skólans og draga úr líkum á einelti.
  • Skipulagt starf í frímínútum unglinga
    • Í frímínútum elstu árganga skólans er skipulagt starf þar sem umsjónarhópar skiptast á að sinna verkum eins og tónlistarflutningi, sjá um spil og töfl, þrif í mötuneyti og að halda röð og reglu.  Slíkt eykur ábyrgð elstu nemenda á skólanum sínum og er til þess fallið að minnka líkur á einelti í þeirra hópi.

 

Viðbragðsáætlun

Komi upp einelti er fyrirliggjandi viðbragðsáætlun sem hægt er að styðjast við.  Í viðbragðsáætlun eru tilgreind ýmis úrræði sem velja má úr.  Umsjónarkennari í samráði við deildarstjóra og námsráðgjafa velja til hvaða úrræða er gripið.  Foreldrar eru ávallt hafðir með í ráðum þegar tekið er á tilteknum eineltismálum.  Sem dæmi um úrræði sem gripið er til er eftirfarandi:

    • Aukin gæsla sem miðar að því að stöðva eineltið samstundis
    • Viðtöl við foreldra viðkomandi nemenda
    • Leggja fyrir tengslakönnun í bekk
    • Huga þarf að styrkingu þolanda og lausn vanda gerenda
    • Breyta sætisskipan í bekk
    • Koma upp leynivinakerfi
    • Nemandi sem fyrir einelti verður heldur dagbók í samráði við trúnaðarmann úr röðum starfsfólks
    • Umfjöllun í bekk um einelti og eineltisyfirlýsingu skólans
    • Aukin áhersla á samskiptabók til samskipta við heimili
    • Fá stuðning frá námsráðgjafa skólans

 

Mælingar og skráning

  • Árveknilisti

Haldin er skrá um þau tilvik þar sem grunur um einelti vaknar. Eineltisráð fylgist með að ný tilfelli séu skráð og að skipulega sé unnið í skráðum tilfellum

  • Skólapúlsinn

Á hverju ári eru gerðar reglulegar mælingar á ýmsum þáttum skólastarf með því að spyrja tiltekið úrtak nemenda í 6. bekk og eldri tiltekinna spurningar.  Þar á meðal eru spurningar varðandi einelti.  Í niðurstöðum fæst samanburður milli allra skóla sem nota Skólapúlsinn og því sést hver staða skólans er miðað við aðra skóla á Íslandi.

  • Skólavogin

Skólavogin er spurningakönnun sem Samband íslenskar sveitarfélaga framkvæmir í öllum skólum á Íslandi. Kannanirnar eru lagaðar fyrir nemendur, starfsmenn og foreldra.  Í þeim könnunum er m.a. spurt um einelti og líðan og því hægt að meta stöðu Sunnulækjarskóla í samanburði við aðra skóla með Skólavoginni.

  • Kannanir meðal nemenda, foreldra og starfsmanna

Rafræn könnun meðal foreldra skólans er framkvæmd annað hvert ár sem hluti af innra mati Sunnulækjarskóla. Í þeirri könnun er spurt um einelti og hægt að ráða af henni hvort árangur er að nást í vinnu gegn einelti í skólanum.